Tveir höfuðkrimmar

Punktar

Ég tel Geir Haarde vera krimma, svo og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Þau hafa hneppt okkur í skuldafangelsi, börn okkar og barnabörn. Þau hafa hneppt heila þjóð í skuldafangelsi. Með mistökum á mistök ofan. Með gerræði á gerræði ofan. Verri krimma er ekki hægt að finna hér á landi. Illu öflin, sem hafa hallarbylt samfélaginu, eru Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin. Þau þóttust vera á vaktinni, þegar sigling inn í kreppu varð að falli niður í hrun. Annað hvort brýtur þjóðin illu öflin á bak aftur eða hún gengur þrælslunduð undir okið. Líklega gerist það síðara og krimmarnir halda velli.