Landhelgisgæzla Flokksins

Punktar

Komið hefur í ljós, að Landhelgisgæzla Georgs Kr. Lárussonar er gróðarstía spillingar Flokksins og frændanna. Þar ræður skírteini Sjálfstæðisflokksins flestu um framgang manna. Það var óvart upplýst á Facebook um daginn. Gæzlan er dæmi um stofnun, sem Flokkurinn hefur lagt undir sig og telur sig eiga. Frammistaða Georgs er með eindæmum. Hann hefur rækilega stimplað sig inn sem rótari Flokksins og svikari við þjóðina. Mikilvægt er, að skítapakkinu verði öllu spúlað út úr Landhelgisgæzlunni, þegar við losnum við ríkisstjórnina.