Því er haldið fram, að kona Gunnars Páls Pálssonar í VR og lífeyrissjóði VR vinni í Kaupþingi. Líka kona og sonur Þorgeirs Eyjólfssonar í lífeyrissjóði VR. Dóttir hans er sögð í varastjórn Exista. Kona Guðmundar B. Ólafssonar í VR er sögð starfsmaður Kaupþings. Ef þetta er rétt, er ég ekki hissa á, að Gunnar Páll hafi samþykkt fjárglæfra Sigurðar Einarssonar, Hreiðars Más Sigurðssonar og Ólafs Ólafssonar í Kaupþingi. Til gamans má geta þess, að VR og lífeyrissjóður VR töpuðu minnst sextíu milljörðum á hruni Kaupþings. Gunnar Páll vill áfram hafa traust félagsmanna til að brenna meira fé.