Reykfylltu bakherbergin

Punktar

Meðan andófsfólk fagnar sigri á Austurvelli, halda gömlu dólgarnir áfram að stjórna í reykfylltum bakherbergjum. Fulltrúar flokkanna hittast á leynifundum til að togast á um orðalag. Hver hefur sinna hagsmuna að gæta, ekkert hefur breytzt. Engar fréttir berast af fundunum í reykfylltu bakherbergjunum. Pólitíkusum finnst nefnilega fráleitt að skríllinn fái upplýsingar. Þetta kemur honum ekki við. Ekkert er gegnsæið. Enn eru gömlu pólitíkusarnir að hulduverkum plús sá nýi, sem greinilega er fæddur gamall. Nýja Framsókn er bara gamla Framsókn með smávegis bótox-andlitslyftingu.