Ég hef lengi varað ykkur við Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og bent á skelfilega fortíð hans. Nú hefur John Perkins tekið dýpra í árinni. Hann telur sjóðinn beinlínis vera glæpastofnun hins hnattvædda auðvalds. Ég tek undir, að við þurfum að gæta auðlinda okkar fyrir sjóðnum og hnattvædda auðvaldinu. Við verðum að eignast kvótann aftur, sem kvótagreifar veðsettu útlendingum. Við megum ekki afhenda kvótagreifunum hann á nýjan leik. Við þurfum að varðveita orkuna í fallvötnum og jarðhita fyrir frekari ásælni hnattvædda auðvaldsins og Landsvirkjunar. Þetta eru orðin mikilvægustu mál íslenzkrar pólitíkur.