Þorir að segja satt

Punktar

Katrín Jakobsdóttir sagði það, sem allir vita. Laun munu lækka og skattar verða hækkaðir. Hver sem verður við völd á næsta kjörtímabili. Ekki sízt, ef Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar. Að minnsta kosti, ef hann lætur hér eftir sem hingað til. Hann hækkaði síðasta skatta fyrir tæpum fjórum mánuðum. Það er bara kosningafroða, þegar Flokkurinn þykist ekki núna vilja lækka laun og hækka skatta. Hins vegar er virðingarvert, þegar stjórnmálamaður þorir að segja sannleikann eins og Katrín gerði. Við þurfum fleiri slíka pólitíkusa. Og færri pólitíkusa á borð við morfís-froðusnakka Flokksins á þingi.