Bakkabræður stöðvaðir

Punktar

Fráleitt er, að Bakkabræður fái Exista gefins. Þeir, sem komu fyrirtækjum á hausinn, eiga ekki að fá þau aftur. Þess vegna ber með öllum ráðum að koma í veg fyrir, að yfirtökutilboði þeirra verði tekið. Við endurreisn þjóðarhags má alls ekki sleppa fyrirtækjum í hendur útrásarvíkinga og krosseignarmanna á nýjan leik. Slíkir komu samfélaginu á hausinn með bókhaldsbraski og kunna fátt annað. Þeir eiga ekki að fá að spranga um rústirnar og kaupa neitt á brunaútsöluverði. Betra er, að Exista fari á hausinn, en það lendi í klóm Bakkabræðra. Þetta segja meira að segja sjálfir hluthafarnir í Exista.