Obama fetar í spor Bush

Punktar

Barack Obama hefur hindrað birtingu áður óbirtra pyndingamynda frá Abu Ghraib í Írak. Hann hefur endurvakið vafasama herdómstóla til að fjalla um mál fanga í Guantánamo. Hann hefur rekið hershöfðingja í Afganistan og ráðið annan, sem stjórnaði kúrekasveitum loftárása gegn almennum borgurum, Stanley McChrystal. Obama rekur sömu stefnu og George Bush með Ísrael og gegn Palestínu. Því meira sem við kynnumst Barack Obama, því meira er hann eins og George Bush. Ég sagði þetta raunar fyrir kosningar, þegar fæstir gátu vatni haldið yfir mannkynsfrelsaranum Obama. En flestir láta ljúga að sér.