Ég tel, að gögn um svindl og svínarí útrásarbanka og útrásarvíkinga muni finnast. Allar færslur eru tölvukeyrðar og allir bankar taka afrit af heilum netþjónum af öryggisástæðum. Ef afrit hafa verið eyðilögð, er um meðvitaðan glæp að ræða, sem kæra þarf og refsa fyrir. Sennilega eru til afrit af öllu, sem máli skiptir. Pappírstætarar er haldlítil tæki til að fela slóðir á tölvöld. Evu Joly hefur rétt fyrir sér, þegar hún segir slóð peninga ekki afmást auðveldlega. Rannsóknir hafa að vísu farið hægt af stað og glæpamenn hafa haft mikinn tíma. En kvörn réttvísinnar snýst hægt og örugglega.