Sökudólgi flaggað

Punktar

Ég skil ekki, að fjölmiðlar skuli draga versta sökudólg íslenzka hrunsins fram í dagsljósið hvað eftir annað. Sigurjón Árnason á að vera í fangelsi, en ekki á síðum og skjáum fjölmiðla. Hann fullyrðir ævinlega, að eignasöfn IceSave muni standa undir skuldbindingum. Fyrir sér hefur hann ekki neitt, ekki frekar en Jóhanna Sigurðardóttir, sem ítrekað talar um 95% endurheimt. Það er ábyrgðarhluti fjölmiðla að draga fram fólk, sem hefur núll í einkunn á mælikvarða trausts. Og láta það ausa blekkingum yfir hrellda þjóð, sem nú á að moka maðkaðan skítinn eftir Sigurjón Þ. Árnason og Björgólfana báða.