Frekja án sjálfsvirðingar

Punktar

Frekja Björgólfsfeðganna ríður ekki við einteyming. Keyptu Landsbankann hjá Davíð fyrir spottprís, ellefu milljarða. Tóku til þess lán í Kaupþingi upp á sex af þessum ellefu milljörðum. Vilja nú borga helminginn til baka, þrjá milljarða. Afleiðing eignarhalds þeirra er mörghundruð milljarða skuld okkar og afkomenda okkar. Bjöggarnir hafa engan snefil af sjálfsvirðingu. Þá á að gera landræka í ævilanga útlegð. Eiga að taka með sér Davíð Oddsson, sem arfleiddi þá að stjórnarformanni bankans, þegar þeir tóku við herfanginu. Fráleitt er, að Kaupþing gefi eftir krónu af milljarðaskuld Björgólfsfeðga.