Landsins stærsti kýrhaus

Punktar

Margt er skrýtið í kýrhausnum. 1. Davíð Oddsson undirritaði skuldbindingar vegna IceSave. Segist núna vera andvígur þeim. Skrýtnara er, að hluti þjóðarinnar elskar Davíð svo heitt, að hún trúir honum. Enginn lýgur eins bratt og einmitt Davíð Oddsson. Sagði eitt í plöggum, en þykist nú hafa sagt prívat eitthvað allt annað. 2. Sjálfstæðisflokkurinn bar ábyrgð á IceSave skuldbindingunni í haust. Þar á meðal þáverandi þingflokksformaður, Bjarni Benediktsson. Nú þykist flokkurinn vera andvígur skuldbindingunni, þar á meðal formaðurinn Bjarni Benediktsson. Þetta er landsins stærsti kýrhaus.