Samt gerist ekki neitt

Punktar

Fjármálabrask Kaupþings í fyrrasumar var hámark siðleysis. Annað eins hefur ekki sézt á Vesturlöndum. Samt ganga bankastjórarnir Sigurður og Hreiðar Már ennþá lausir. Samt hafa deildarstjórar siðleysisins í Kaupþingi verið í skilanefndum bankanna fram á þennan dag. Samt situr bankaráðið ekki í gæzlu. Samt gubbar nýr bankastjóri siðleysi sínu yfir almenning. Fékk lögbann sett á sannleikann. Tveir ráðherrar æpa af sársauka yfir siðleysinu. Samt gerir ríkisstjórnin ekkert í málinu. Hún ber ábyrgð á lélegum saksóknara og lélegu fjármálaeftirliti. Hún ber ábyrgð á furðufuglinum Finni Sveinbjörnssyni.