Finnur Sveinbjörnsson kúluprins og jó-jó lögbannsins er ekki eina vandamál Kaupþings. Komið er í ljós, að formaður bankaráðsins er líka kúluprinsessa. Hulda Dóra Styrmisdóttir fékk kúlulán upp á 200 milljónir á núverandi verði. Hún er ennfremur annað jó-jó í lögbannsmálinu. Fyrst samdi hún tilkynningu um lögbannsbeiðnina. Síðan samdi hún bréf til starfsmanna, þar sem ráðið þvær hendur sínar af Finni og lögbanninu. Hafi ekki þjónað hagsmunum bankans og hafi valdið bankanum skaða, sem Hulda Dóra harmar. Of mikið er fyrir einn banka að hafa jó-jó í tveimur æðstu stöðunum. Hætta þau ekki bæði strax?