Útrásarvíkingar keyptu bankana fyrir lánsfé úr öðrum bönkum. Þeir hreinsuðu út bankana og gerðu þá gjaldþrota. Gerðu Seðlabankann gjaldþrota í leiðinni. Þeir keyptu gróin og öflug fyrirtæki fyrir lánsfé. Þeir rústuðu þessi fyrirtæki og gerðu sum gjaldþrota. Sjóvá, Eimskip, Flugleiðir. Við vitum nokkurn veginn allt um glæpi þeirra. Vitum hvernig þetta var gert og hverjir gerðu. Hannes Smárason, Wernersbræður, Björgólfsfeðgar og Ólafur Ólafsson eru í þessum hópi. Ekki þarf lengur að japla og jamla út af þessum málum. Af hverju eru slíkum víkingum ekki enn lesnar ákærur? Eftir hverju er beðið?