Framkoma bankastjóra og bankamanna var ógeðsleg síðustu árin. Þeir kvörtuðu yfir lélegum veðum venjulegs fólks og neituðu að taka þau gild. Á sama tíma lánuðu þeir milljarða til glæpalýðs og sápukúlu-fyrirtækja án gildra veða. Í því eru talin kúlulán, sem útvaldir fengu og þurftu aldrei að endurgreiða. Þar á meðal framagosar Sjálfstæðisflokksins, svo sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson. Svo forstokkað er þetta skelfilega lið, að Bjarni Ármannsson segir ábyrgðarlaust að borga skuldir sínar. Alla þessa bankamenn og veðlausa vini þeirra á að reka tafarlaust úr landi. Núna.