Örvæntið ekki

Punktar

Látið ekki svona illa. Lesið tölurnar, sem birtast. Auglýsingar aukast um atvinnu í boði. Útflutningur stendur betur en nokkru sinni í sögunni. Bankarnir eru komnir með yfir þúsund milljarða í sparifé, en vantar trausta lánþega. Hugbúnaðargerð blómstrar meira en nokkru sinni í sögunni. Gagnaver og netþjónabú rísa í vetur og næstu ár. Atvinnuleysi er minna en í nálægum löndum. IceSave er miklu minna en menn héldu. Bilið milli ríkisstjórnarinnar og Ögmundar hefur minnkað. Kannski fellur ríkisstjórnin ekki. Góðar fréttir eru á hverju strái þessa dagana. Örvæntið því ekki, hér mun birta aftur.