Heilinn fremur en hjartað

Punktar

Nýi IceSave samningurinn er þolandi og við skulum samþykkja hann. Mun betri en sá fyrri og fer nálægt vilja meirihluta Alþingis frá í sumar. Meirihluti verður fyrir þessum nýja samningi og Ögmundur Jónasson mun taka afstöðu með heilanum fremur en hjartanu. Svo notað séu hans eigin orð. Nú er einmitt sú staða, að heili dugar betur en hjarta. Við þurfum að ná friði við umheiminn og fá aðstoð hans við að leysa vandamálin. Þótt við séum ekki fyllilega sátt við meðferðina á okkur. Munum, að gervallt ruglið er Sjálfstæðisflokknum að kenna. Og munum að ná okkur niður á honum við fyrsta tækifæri í kosningum.