Steyptu okkur fram af brún

Punktar

Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir voru liðsforingjar í hernum, sem steypti þjóðinni fram af bjargbrúninni. Hrunið var ekki bara herstjórunum Davíð Oddssyni, Geir Haarde og Árna Mathiesen að kenna. Bjarni og Þorgerður voru ötulir liðsforingjar frjálshyggju, einkavinavæðingar, skorts á regluverki, innleiðingu Björgólfsfeðga í samfélagið, peningaaustri ríkisins og Seðlabankans í fyrra. Fyrir þetta er þjóðin nú að gjalda. Aðrir eru að hreinsa til eftir hrunið. Bjarni og Þorgerður standa álengdar og gera hróp að þeim. En Bjarni og Þorgerður steyptu okkur samt fram af brúninni.