Innrásarvíkingarnir

Punktar

Sérstaða Björgólfsfeðga í hópi víkinga var, að þeir voru innrásarvíkingar. Þóttust koma með fullar hendur fjár frá Sankti Pétursborg. Fengu Davíð Oddsson til að gefa sér Landsbankann í einkavinavæðingunni. Gjafverð bankans fjármögnuðu feðgarnir með láni hjá forvera Kaupþings, sem þeir endurgreiddu svo aldrei. Eldri Björgólfur notaði bankann og peningana til að spila greifa í samfélaginu. Yngri Björgólfur notaði bankann og peningana til að kaupa aðstöðu erlendis. Feðgarnir skófu bankann að innan með aðstoð forstjóra Flokksins. Að lokum fundu þeir upp á IceSave og settu þjóðina á hausinn.