Allir skattar eru fínir

Punktar

Ekkert er athugavert við stighækkandi tekjuskatt, hann er bara fínn. Því meira sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru andvígir skatti, þeim mun betri er hann. Sjálfsagt er líka að koma upp auðlindaskatti, enda er Flokkurinn honum alveg andvígur. Allar framkomnar hugmyndir um hærri skatta eru góðar. Enda var Flokkurinn búinn að setja Seðlabankann, bankana og ríkið á hausinn. Ríkið þarf þess vegna núna að borga hundrað milljarða á ári í vexti. Áður en kemur að IceSave Flokksins. Hreinsunin eftir heimsfrægt Davíðs-gönuskeið Flokksins kostar mikla peninga, sem sumpart verða bara fengnir með sköttum.