Ömurlegir kjósendur gráta

Punktar

Ég heyri og les mikinn grátkór vegna hækkaðra skatta. Hæst láta auðvitað þeir, er ollu hruninu, sem sköttunum er ætlað að bæta. Það er sá þriðjungur kjósenda, sem kaus Sjálfstæðisflokkinn og hyggst gera það áfram. Auðvitað axlar hann enga ábyrgð gerða sinna. Samt veldur tjónið af völdum Davíðs og Geirs, Bjarna og Þorgerðar meira en hundrað milljarða vöxtum á ári. Fyrir utan afborganir. Þá erum við ekki byrjuð að tala um IceSave. Í stað þess að biðjast afsökunar á tilveru sinni, stíga þessir ömurlegu kjósendur á stokk og gráta fullum hálsi. Helzt vildi ég, að þeir borguðu einir þessa skatta.