Kjósendur eru gullfiskar

Punktar

Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á hruninu. Allir helztu brennuvargarnir eru eindregnir stuðningsmenn hans. Flokkurinn hossaði Davíð sem forsætis og sem seðlabankastjóra. Hossaði einkavinavæðingu Davíðs á Landsbankanum og hossaði eftirlitsleysi fjármála. Var síðan við stjórnvölinn í hruninu. Ber ábyrgð á hegðun Davíðs og Geirs árið 2008, þegar bankarnir hrundu. Ber fulla ábyrgð á lánasvalli og gjaldþroti seðlabankans. Ber ábyrgð á Bjarna Ben og Þorgerði Katrínu og Birgi Ármannssyni, er voru klappstýrur ruglsins. Af hverju styður þriðjungur þjóðarinnar þessa brennuvarga? Hefur hann bara gullfiskaminni?