Síbylja Íslandssögunnar

Punktar

Minnihlutinn á Alþingi er orðinn fyrirferðarmesta mein þjóðarinnar. Honum tókst að stífla Alþingi dögum saman. Næsta skref hans verður að ganga af þingfundum og segja þingið ólöglegt. Hann mun leggja fram endalausar og lagatæknilegar greinargerðir. Af lagatækni er enn nóg til hjá hrunverjum. Síðan mun minnihlutinn bera ólögmæti Alþingis undir dómstóla, sem áratugum saman hafa fyllzt af kvígildum hrunverja. Málið mun svo enda í Hæstarétti, þar sem vinir og frændur Davíðs Odssonar hafa komið sér notalega fyrir. Svona var Njála og svona var Íslandssagan öldum saman, innantóm lagatækni.