Afneitun í Kastljósinu

Punktar

Ég er viss um, að Páll Óskar og Diddú hafa oftast kosið Sjálfstæðisflokkinn, þau eru þannig týpur. Sem síbrota-kjósendur bæru þau þá ábyrgð á hruninu, er brennuvargar og hrunverjar flokksins stóðu fyrir. Þá var fjör. “sjáið þið ekki veizluna, piltar” sagði ráðherrann. Nú er kominn morgunn, allt brotið innanstokks og ælan út um allt. Erlendir kröfuhafar eru spól, með hótanir á lofti. Þá segja Páll Óskar og Diddú í Kastljósi: Ég skúra ekki. Við viljum ekki borga IceSave, “það er bara skuld einhvers einkafyrirtækis”. Sorgleg afneitun, skuldin er einmitt á ábyrgð síbrota-kjósenda Sjálfstæðisflokksins.