“Ég gerði þetta ekki”

Punktar

Auðvitað vill meirihluti þjóðarinnar ekki borga fyrir IceSave. Þótt það nú væri. Meirihluti þjóðarinnar ber einmitt ábyrgð á IceSave. Kaus yfir okkur Davíð Oddsson. Einnig Halldór Ásgrímsson og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Líka Geir H. Haarde, Árna Mathiesen og Björgvin Sigurðsson. Kjósendur eru ábyrgir fyrir þessum höfðingjum og vilja auðvitað ekki skúra eftir þá. Árum samann hafa kjósendur haldið uppi pólitískum aulum, sem hafa reynzt eins og dæmin sanna. “Ég gerði þetta ekki”, segja núna kjósendur í afneitun. Víst gerðu þeir það. Og víst verðum við öll að borga fyrir ruglið úr kjósendum.