Útkoman verður bara froða

Punktar

Umhverfisráðstefnan í Kaupmannahöfn er skipulagsflopp og máefnaflopp. Eina skiplagið felst í hörkunni í róttækum aðgerðum lögreglunnar. Ræðst fyrirfram og tilefnislaust á fólk. Hefur horn í síðu blaðamanna. Slíkt er einmitt eðli fasista. Ráðstefnugestir eiga erfitt með að komast inn. Standa í biðröðum klukkustundum saman á degi hverjum. Danski ráðstefnustjórinn þykir vilhallur vesturveldunum. Því fór heill dagur í mótmæli fulltrúa Afríku, sem gengu af fundi. Danski forsætisráðherrann bjó til vilhalla tillögu að niðurstöðu, sem gerði fulltrúa þróunarríkja brjálaða. Enda verður útkoman bara froða.