Gaurinn er ekki valinkunnur

Punktar

Herðubreið, áróðursgagn Samfylkingarinnar, telur Jón Sigurðsson valinkunnan. Það er meiriháttar misskilningur. Hann er þekkt klappstýra útrásarinnar. Lét birta mynd af sér með lofrullu á útlensku um útrásina. Öllu verra er, að hann svaf á báðum stöðunum, þar sem stöðva mátti verstu glæpi útrásarinnar. Svo sem IceSave. Í fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum. Hef ekki heyrt neinn mæla bót þessum brotlega gaur sem bankaráðs-formanni. Ekki einu sinni krata. Þeir eru miður sín eins og aðrir. Að setja kvígildi Samfylkingarinnar og útrásar-klappstýruna yfir banka sendir kolröng skilaboð út um allan heim.