Hrunverjar ærðu þjóðina

Punktar

Hrunverjar hyggjast komast aftur til valda 2010 í kjölfar synjunar forseta á staðfestingu IceSave. Þeir ærðu þjóðina. Fólk er hér í eðli sínu vænisjúkt og þjóðrembt. Það neitar líka að bera ábyrgð á gerðum sínum í kjörklefanum á fyrri árum. Fólkið studdi Davíð Oddsson til valda í samfélaginu og sýpur nú seyðið af því. Í stað þess að horfast í augu við afleiðingar bankafrelsis neitar fólk staðreyndum. Þannig er hinn djöfullegi þríhyrningur afneitunar, þjóðrembu og vænisýki orðinn að þjóðarsjúkdómi. Með sama framhaldi á rugli þjóðarinnar verða hrunverjar aftur komnir til valda í landinu næsta sumar.