Ég ákæri kjósendur

Punktar

Tel kjósendur hafa kosið yfir mig eftirlitslausa frjálshyggju í fjármálum. Tel þá síðan hafa sýnt einbeittan brotavilja. Hafa tugþúsundum saman hvatt forsetann til að hafna lögum um friðsamleg samskipti við útlönd. Hyggjast tugþúsundum saman kjósa Sjálfstæðisflokkinn til valda í næstu kosningum. Tel þá bera ábyrgð á, að næsta ríkisstjórn verður skipuð þeim flokkum, sem ollu hruninu. Tel íslenzka kjósendur fullkomlega ófæra um að reka sjálfstætt þjóðfélag. Fer fram á, að þeir borgi mér tjónið, sem ég verð fyrir vegna heimsku og afneitunar þeirra, vænisýki og þjóðrembu. Ég ákæri kjósendur.