Þau ráða ekki ríkjum

Punktar

Sjálfsagt er hægt að finna tug vinstri grænna evrópuþingmanna, sem eru reiðubúnir að styðja Ísland. Jafnvel hjálpa Íslandi, eins og Eva Joly gerir. Sjálfsagt er hægt að finna tvo tugi vinstri grænna fræðinga í sama skyni. Vandinn er hins vegar, að þeir ráða ekki ríkjum. Allra sízt geta þeir sagt Gordon Brown og Jan Peter Balkenende fyrir verkum. Þeir eru Blair-istar og Thatcher-istar. Okkar leiðtorgar hafa allt frá Davíð, Geir og Árna lofað að borga IceSave. Við sleppum ekki frá fortíðinni. Brown og Balkenende hefja ekki nýjar viðræður bara af greiðasemi við Joly eða Lipietz. Við komumst ekki frá A til B bara á Silfri Egils.