Þau munu segja bless

Punktar

Við tökum þátt í atkvæðagreiðslu á vefnum um, hvaða erlendar þjóðir séu mestu óvinir okkar. Afneitum aðild okkar að tilraun Sjálfstæðisflokksins til óheftrar frjálshyggju í fjármálum. Hötum Evrópusambandið eins og pestina miklu. Sökum erlenda aðila um að skilja okkur ekki. Virðum ekki samninga við erlend ríki, högum okkur nákvæmlega eins og okkur þóknast. Erum eins og vanþroska unglingar. Erum sem þjóð alveg úti að aka, stefnum á hengiflug í þjóðaratkvæðagreiðslu læmingja. Fjölþjóðastofnunum og erlendum ríkjum ber engin skylda til að draga okkur að landi. Þau munu segja bless við Ísland.