Guðbjartur verði forsætis

Punktar

Legg til að tveir þöngulhausar hætti í ríkisstjórninni. Forsætisráðherra verði skipaður með hliðsjón af hæfileikum til að sætta ólík sjónarmið. Þar verði skipaður Guðbjartur Hannesson samfylkingarmaður. Hann kom vel fyrir í þjarkinu um IceSave sem formaður fjárlaganefndar. Fjármálaráðherra með sérstakri ábyrgð á IceSave verði skipuð Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Hún kemur rosalega vel fyrir og kann að tefla skák. Nota má tækifærið til að skipta út nokkrum auðnuleysingjum á borð við Árna Pál Árnason. Þar má koma fyrir hverjum sem er. En Ólína Þorvarðardóttir er sjálfkjörin sjávarútvegs.