Afhendi fasteignir og lausafé

Punktar

Með hjálp Davíðs Odssonar og Geirs Haarde ollu útrásarvíkingar þjóðinni 900 milljarða tjóni. Það er sú upphæð, sem þeir skulda okkur fyrir óskammfeilna framgöngu í fjármálum. Þeir eiga að endurgreiða þessa upphæð. Sumir skulda okkur meira en hundrað milljarða, til dæmis Björgólfur Thor. Aðrir skulda tugi milljarða og enn aðrir bara staka milljarða. Það er gersamlega út af kortinu, að nýju bankarnir feli slíkum mönnum að reka fyrirtæki. Fyrst verða þeir að afhenda fasteignir og lausafé, sem þeir komu í skjól. Ekki kemur til greina, að mestu siðleysingjum sögunnar leyfist að reka hér fyrirtæki.