Fávitar gera landið óbyggilegt

Punktar

Ótrúlegur fjöldi fólks telur skattgreiðendum bera að borga fyrir alla. Til dæmis svonefndan “forsendubrest” hjá þeim, sem tóku gengistryggð lán. Þessir gleymdu skattgreiðendur eru börnin okkar. Sami fjöldi telur sig hafa gert skyldu sína með þjóðaratkvæði gegn IceSave. Taka þeir ábyrgð á herkostnaði við ófrið við útlönd? Aldeilis ekki. Vansagt er, að flestir Íslendingar séu fávitar. Einmitt fávitarnir komu okkur á hausinn með röngu vali í kosningum í tvo áratugi og í nýlegu þjóðaratkvæði. Ég hvet alla, sem geta, til að flýja land, því að þjóðrembdir fávitar í afneitun gera það óbyggilegt.