Doktor Gunni og Jenny Anna

Punktar

Doktor Gunni og Jenny Anna eru meðal beztu stílista landsins. Brjóta upp hefðbundnar reglur um orðaval og leyfa ensku bíómyndanna að streyma um íslenzkuna. Mörgum finnst það uggvænlegt, en mér finnst það hressandi. Íslenzkur texti hefðbundinn er leiður aflestrar, háður lögmálum, sem koma stíl að engu gagni. Sagnorðin fleyta ekki textanum fram, heldur hökta menn á nafnorðum. Þannig er umræðan í dag, fólk er enn að skrifa skólaritgerðir. Meira þarf til að fá íslenzku til að lifa af í óræðri framtíð. Doktor Gunni og Jenny Anna leggja sitt af mörkum til þess. En Gunni bloggar of sjaldan.