Illskeyttir og róttækir

Punktar

“Barnamorðingi” æpti einn þingmanna repúblikana að demókrata í ræðustól um daginn í umræðu um heilsutryggingar. Dæmi um heiftina og brjálsemina, sem hefur heltekið flokk repúblikana. Komið er til skjalanna fólk, sem hefur nært sál sína á þindarlausum hatursáróðri Fox sjónvarpsins. Fólk á borð við varaforsetaefnið Sarah Palin. Hin raunverulegu völd í flokknum eru komin í hendur öfgahópa á borð við The Tea Party. Og hugmyndafræðingarnir eru á Fox stöðinni. Kannski hentar þetta kjósendum vestra. Kannanir sýna róttækari og illskeyttari skoðanir fólks. Morðhótanir gegn forsetanum blómstra á vefnum.