Áldraumar verkalýðsrekenda

Punktar

Alþýðusamband verkalýðsrekenda er heillað af álbræðslum. Bygging þeirra veitir vinnu um skamman tíma. Síðan taka við tímar atvinnuleysis og auðra íbúðablokka. Eins og austur á fjörðum. Draumar manna um margfeldisáhrif á atvinnu af stórvirkjunum og stóriðju hafa reynzt órar einir. Engin fyrirhöfn framleiðir eins fá störf miðað við tilkostnað og einmitt álbræðsla. Orkan er nánast gefins og nánast ekkert verður eftir í landinu í launum. Þá er nær að halla sér að ferðaþjónustu og öðrum vinnuaflsfrekum greinum. 10% aukning í túrisma mundi eyða atvinnuleysinu. En verkalýðsrekendur hafa engan áhuga.