Afneitið ekki Íraksstríðinu

Punktar

Myndbandið á WikiLeaks er skelfilegt, en í sjálfu sér ekkert nýtt. Við höfum fengið fréttir af svona atburðum allan tíma stríðsins gegn Írak. Ég hamaðist gegn stríðinu. Fólk var þá ekki tilbúið að taka afstöðu gegn því. Kannski er sá tími kominn núna. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson voru endurkosnir til mannvirðinga. Þá settu kjósendur ekki fyrir sig aðild þeirra að þessu viðbjóðslega stríði. Fyrir okkar hönd. Beinið því reiði ykkar að þeim, sem standa ykkur næst, það er kjósendum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Þeir hafa margt á samvizkunni, stríð við Írak og hrun á Íslandi. Ekki afneita.