Sérstakur verndari Landsbankans

Punktar

Furðuleg eru þau ummæli sérstaks saksóknara, að hann hafi einkum rannsakað Kaupþing. Af hverju er þá sá banki látinn í friði, sem hefur verið og verður okkur dýrastur. Það er Landsbankinn, sem átti IceSave og fór svo glæsilega á hausinn, að ríkið getur ekki einkavætt hann. Mér sýnist, að Landsbankinn hafi verið verstur bankanna þriggja. Af hverju nýtur hann verndar sérstaks saksóknara? Hvar er Eva Joly núna? Sérstakur saksóknari er fullfær um að klúðra, ef hún passar hann ekki. Misjafn dugur skilanefnda má ekki stýra sérstökum. Verður sjálfur að hafa frumkvæði, þegar skilanefndir bregðast.