Landráð og fávísi

Punktar

Ég tek undir orð Birgittu Jónsdóttur. Hér voru framin landráð. Þar stóðu fremstir eigendur og stjórnendur bankanna. Þeir eiga umsvifalaust að fara í fangelsi. Hvort fávísi Geirs og Davíðs og nafna míns jafngildir landráðum af gáleysi, get ég ekki dæmt um. Þeir eru allir búnir að vera og Davíð getur ekki lengur ritstýrt Mogganum. Einnig er ljóst, að formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins eru of flækt í fjármálaóreiðu til frekari starfa fyrir Alþingi. Þetta allt sögðu margir áður en skýrslan kom út og hún hefur staðfest þessar skoðanir. Græðgi, óreiða, landráð, fávísi og Flokkurinn.