Lýðskrum klappstýrunnar

Punktar

Ekki verður skafið af Ólafi Ragnari Grímssyni, að hann var aðal-klappstýra helztu glæpamanna landsins. Gerði útrásina að sinni, þeyttist um heiminn í einkaþotum þeirra og faðmaði útlenda glæpavini bófanna. Til að leysa sig úr þeim álögum bjó hann til mesta lýðskrum Íslandssögunnar. Varð þjóðhetja á einu andartaki með því að synja IceSave staðfestingar. Hálf þjóðin tók trú á klappstýruna og studdi neitunina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Skrípaleikurinn sá varð okkur dýrari en fyrri klappstjórn Ólafs Ragnars. Erfitt er að útskýra slíkt fyrir þjóð, sem ber ábyrgð á græðgisvæðingunni og afneitar ábyrgðinni.