Drukkinn fíll í glervörubúð

Punktar

Eftir útkomu sannleiksskýrslunnar skil ég loksins, hvers vegna brezka ríkisstjórnin flokkaði Landsbankann og Ísland sem hryðjuverkamenn. Lái þeim það ekki. Þeir áttu við að etja kexruglaðan seðlabankastjóra og mestu eymdar-ríkisstjórn allra tíma. Bréfum og tilboðum og neyðarópum var ekki svarað. Ísland dró lappirnar fram í rauðan dauðann. Brezka stjórnin átti ekki annarra kosta völ en að frysta eigur íslenzkra banka. Það var ekki vonzkunni í Gordon Brown að kenna eins og við héldum. Bankafrystingin var kórrétt vörn gegn ríki, sem hagaði sér eins og drukkinn fíll í glervörubúð.