Sjávarkjallarinn dýrastur

Punktar

Sjávarkjallarinn í Geysishúsinu hefur þann vafasama heiður að vera dýrasta veitingahús landsins. Þar kostar aðalréttur 5200 krónur, þriggja rétta máltíð 10000 krónur og smakkveizla 8900 krónur. Næst kemur Vox með aðalrétt á 5000 krónur, þriggja rétta málið á 9800 krónur og smakkveizlu á 9900 krónur. Grillið er í þriðja sæti með aðalrétt á 5200 krónur, þriggja rétta máltíð á 9400 krónur og smakkveizlu á 9400 krónur. Skammt að baki eru Hótel Holt og Fiskfélagið. Síðan kemur smábil niður í Fiskmarkaðinn, Einar Ben. og Lækjarbrekku. Það segi ég með fyrirvara um, að rétt verð sé á heimasíðunum.