Hvað hefur hún fyrir stafni?

Punktar

Við vitum, að ríkisstjórnin er ekki að siðvæða bankana. Ekki að minnka leyndarhyggju. Ekki að taka vegabréfin af gullætunum. Ekki að láta rannsaka lífeyrissjóði og sparisjóði. Ekki að ráða fólk með auglýsingu og heiðarlegu ferli. Ekki að ýta áfram persónukjöri og stjórnlagaþingi. Ekki að bregðast við gagnrýni Evrópuráðsins um aðgerðir gegn spillingu. Ekki að sauma að ótrúlega spilltum og heimskum forverum sínum, Davíð og Geir. Ekki að flytja kvótann til þjóðarinnar með kvótafyrningu. Fyrst og fremst flýtur hún um höf og reynir að drukkna ekki. Hefur misst framtakið, er orðin að lifandi líki.