Rothögg á ræningjana

Punktar

Jón Ásgeir Jóhannesson og félagar eiga ekki von á góðu. Ef sumar reynast réttar af kærum skilanefndar Glitnis, fá þeir ævilangt fangelsi. Réttarfarið þar vestra tvínónar ekki. Þar eru engin fjögur ár á Hrauninu, spyrjið bara Bernard Madoff, sem fékk 150 ár. Stefna Glitnis hljóðar upp á 260 milljarða króna stuld. Nálgast stærð tjónsins af Davíð Oddssyni á síðustu metrunum í Seðlabankanum. Og ekki bara Jón Ásgeir á leiðinni í Sing Sing. Einnig kona hans, Ingibjörg Pálmadóttir, hinir geðþekku greifar Hannes Smárason og Pálmi Haraldsson, auðvitað Lárus Welding og fleiri, líka PriceWaterhouseCoopers.