Þar slær hjarta hans

Punktar

Gylfi Arnbjörnsson verkalýðsrekandi harmar hækkun hátekjuskatts, þar slær hjartað. Harmar líka hækkun auðlegðarskatts, þar slær hjartað. Harmar líka orkuskatt, þar slær hjartað. Harmar skatt á fyrirtæki, þar slær hjartað. Allt eru þetta samt góðir og brýnir skattar í erfiðri stöðu. Betra hefði þó verið að hækka líka fjármagnstekjuskatt. En þá hefði Gylfi trompast, þar slær hjartað. Niðurskurður ríkisútgjalda er farinn að bitna harkalega á fátæklingum, en verkalýðsrekandinn grætur það ekki. Heimtar meiri niðurskurð í stað hátekjuskatts, auðlegðarskatts, orkuskatts og fyrirtækjaskatts.