Verkalýðsrekendur fá falleinkunn

Punktar

Enn rífa verkalýðsrekendur kjaft. Heimta arðlausar framkvæmdir og jafnvel framkvæmdir, sem sliga ríkið. Flottasta dæmið um rugl verkalýðsrekenda er krafan um milljarða í hátæknisjúkrahús. Þarf þó að skera hátæknisjúkrahúsið, sem fyrir er. Svartasta dæmið um ruglið er krafan um afsal auðlinda landsins til að hjálpa verktakabransanum. Verkalýðsrekendur vilja fórna sjálfstæðinu fyrir atvinnubótavinnu. Með annarri hendi heimta þeir fé af lífeyrissjóðunum og með hinni neita þeir að láta það af hendi. Þetta eru rugludallar, sem vilja reka þrælana í verkfall. Verði þeim að góðu. Ég gef þeim falleinkunn.