Var aldrei afeitruð

Punktar

Fáir búast við góðu af Samfylkingunni. Ekki stendur hún vörð um auðlindir okkar. Bara vörð um bófana í Magma. Ekki sættist hún við fólk um skynsamlega lendingu á skuldavanda heimilanna. Ekki losar hún sig við pólitíkusa, sem þágu mútur af gullætum hrunsins. Nema einn. Ekki getur hún útvegað sér einn nothæfan ráðherra í ríkisstjórn. Ekki hættir hún að ljúga að fólki, svo sem bæjarstjóri Gaflara um afkomuna. Ekki leggur hún af Blair-isma græðginnar. Hún eitraðist af dólgafrjálshyggju í ríkisstjórn Ingibjargar Sólrúnar með Sjálfstæðisflokknum. Samfylkingin hefur síðan engan veginn verið afeitruð.