Settur ríkissaksóknari, Björn L. Bergsson, vill ekki fá dómsúrskurð um, hvort vanræksla Davíðs Oddssonar sé sakhæf eða ekki. Bjó til glæpafrelsi og eftirlitsleysi við einkavinavæðingu bankanna. Settist síðan óhæfur í stól seðlabankastjóra. Gerði bankann gjaldþrota með 350 milljarða innspýtingu í gjaldþrota banka. Hlustaði ekki á erlenda kollega, sem grátbáðu hann um að vakna. Vissi því um hrunið með árs fyrirvara, en gerðí ekkert, var frosinn. Allt kemur þetta greinilega fram í sannleiksskýrslunni. Björn hefði átt að gera þjóðinni þann greiða að láta reyna á stórmál þetta fyrir dómstólum.